MYNDIR
...
Jæja það var verið að vikta litla manninn í dag og er hann orðinn 4600 gr, sem er bara gott fyrir 11 daga gamlann snáða. Hann var 4320 gr þegar hann fæddist þannig hann er að þyngjast sem er gott enda er hann voða duglegur að drekka hjá mér. Svo fór hann í 1sta baðið sitt i dag líka og fannst honum það alveg voða gott en var ekkert hrifinn af því þegar hann var tekinn upp úr og pabbi hans var að þurka og klæða hann. Veigar Björn er svo stór og stæðilegur að hann svitnar bara og svitnar ef maður er að klæða hann of mikið, þannig hann þjáist ekki mjög mikið þegar maður er að klæða hann í föt því honum finnst það svaka leiðinlegt. Svo eru það rosa átök hjá honum að drekka það perlar svitinn á enninu!! Þannig hann og amma hans eru eins voða heitfeng.
Annars hef ég nú voða lítið að segja í bili nema bara takk fyrir kveðjurnar.
...
...
Enn ég setti inn 2 myndir reyni að setja fleiri seinna.
...
ég reyni að setja inn myndir í dag. Er að hlaða myndavelina þannig þetta fer vonandi að bresta á!
...
ég er bara farin að bíða og bíða ég er svo óþolinmóð................
er samt farin að hallast að þvi að hann komi bara á nýju ári og/eða ég komi í fréttunum með 1sta barn ársins.
Olla
smá fréttir
Hvað skal segja, eg er alveg tom e-ð. Eg fór nú á Akureyri um daginn að reyna finna föt á piltinn en þar fannst mér nú vera álíka mikið úrval og hérna á Skr, það er allt gjörsamlega undirlagt af bleiku. Ég hefði kannski bara átt að skella mér á nokkra bleika kjóla og málið væri dautt, nei ég segji svona. Ég fann nú e-ð smotterí þarna á Ak.
Núna er nu bara allt að verða tilbúið fyrir komuna en ég er nu kannski ekki buin að vera dugleg við að þvo föt (er ekki byrjuð) en þetta fer nu vonandi að koma allt saman. Ég er búin að fá þennan svaka bílstól Graco einhver ný týpa og kerrupoka þannig litli maður getur sofið i fína vagninu þrátt fyrir vetur konung. Svo er ég búin að skreyta fyrir jólinn þannig allt er þetta verða til. Lika kannski eins gott því það var ein skráð inn á 2 í jólum ( daginn eftir mér) og hún átti nuna 6 des. Þannig það er aldrei að vita hvenæt þetta kemur hjá mér. Hann er nú búinn að skorða sig og fínerí þannig við bíðum nú bara spennt eftir því að hann verði tilbúinn að líta heiminn augum.
Well than ég held ég hafi bara ekkert meira að segja nema kannski bara takk fyrir kveðjurnar. Það er svo gaman að fá kveðjur!!![]()
Olla
Nýjar myndir!
eða kannski bara undirbúa ég held að sé að verða svoldið sniðugt.
Olla